Söguslóðir Suðurlands - Vinnustofur um mótun ferðaleiðar
Markaðsstofa Suðurlands vinnur nú að þróun Söguslóða Suðurlands, verkefnis sem tengir saman sögu, menningu, náttúru og mannlíf svæðisins í heildstæða ferðaleið. Verkefnið hlaut styrk úr Byggðaáætlun í gegnum SASS.
Ferðaleið er meira en röð áfangastaða. Hún er frásögn sem tengir saman staði, fólk og fortíð. Með Söguslóðum Suðurlands viljum við hvetja gesti til að dvelja lengur, dreifa heimsóknum víðar um svæðið og auka sýnileika staða með ríka sögu og menningarlegt gildi.
Vinnustofur um allt Suðurland
Á næstu vikum verða haldnar vinnustofur víðs vegar um landshlutann. Þangað bjóðum við heimafólki, sveitarfélögum, söfnum, félagasamtökum, ferðaþjónustuaðilum og öðrum sem þekkja sitt svæði vel. Saman leitum við svara við einni spurningu:
Hvaða sögur búa á þínu svæði?
Á vinnustofunum kortleggjum við sögustaði, þjóðsögur, merkt fólk og atburði, ræðum möguleg þemu og skoðum hvernig hægt er að byggja upp áhugaverðar og sjálfbærar söguleiðir.
Hvað verður til?
Lokaafurð verkefnisins verður stafrænt kort, þemabundnar ferðaleiðir og aðgengilegur efnisbanki sem styður áframhaldandi uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Staðir og dagsetningar
Til stendur að vinnustofur verði haldnar á eftirtöldum stöðum á næstu misserum:
- Eyrarbakki 10. nóvember kl 11-13 á Rauða Húsinu.
- Hella - 11. nóvember kl 11-13 á Stracta Hótel.
- Kirkjubæjarklaustur (tímasetning auglýst síðar)
- Laugarvatn (tímasetning auglýst síðar)
- Vík (tímasetning auglýst síðar)
- Vestmannaeyjar (tímasetning auglýst síðar)
- Höfn (tímasetning auglýst síðar)
- Öræfi (tímasetning auglýst síðar)
Fyrsta vinnustofan mun fara fram í Rauða húsinu á Eyrarbakki 10. nóvember kl 11-13 á Rauða Húsinu.
Í kjölfarið verður svon vinnustofa á Stracta Hótel á Hellu þann 11. nóvember kl 11:00 - 13:00.

