Stekkjaskóli í nýtt skólahúsnæði
Í dag, mánudaginn 29. nóvember, hófst skólastarf Stekkjaskóla í nýju og fallegu húsnæði að Heiðarstekk 10.
Starfsfólk skólans hefur unnið mikið þrekvirki síðustu daga við að koma öllu í stand og undirbúa komu nemenda í skólann.
Lögð er áhersla á vellíðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti þar sem upplýsingatæknin er óspart notuð í námi og kennslu.
Síðastliðinn föstudag komu nokkrir forsvarsmenn sveitarfélagsins í heimsókn til að færa starfsfólkinu hamingjuóskir, blóm og konfekt. Það er fullt tilefni til að óska öllum nemendum, starfsfólki og foreldrum til hamingju með hið nýja skólahúsnæði.
Hér er hægt að lesa þriðja fréttabréf Stekkjaskóla en það er tileinkað þessum tímamótum.