Tilkynning vegna hækkunar á gjaldskrá hjá Strætó bs.
Samkvæmt 8. gr. reglna um aksturþjónustu við fólk með fötlun í Sveitarfélaginu Árborg tekur gjald fyrir ferð mið að hálfu almennu fargjaldi hjá Strætó bs. hverju sinni.
Nú 1. október tekur ný gjaldskrá hjá Strætó bs. gildi og hækkar því gjald fyrir aksturþjónustu hjá Sveitarfélaginu Árborg úr 245 kr. í 275 kr. fyrir hverja ferð frá 1. október.
Athugið að skólaakstur grunnskólabarna með fötlun er undanþegin gjaldi.