Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2022
Umhverfisnefnd Árborgar samþykkti á fundi sínum að auglýsa eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga sumarið 2022.
Viðurkenningarnar verða afhentar á Sumar á Selfossi , daganna 4. - 7. ágúst
Veittar eru viðurkenningar fyrir:
- Fallegasti garðurinn
- Fallegasta gatan
- Snyrtilegasta fyrirtækið eða stofnun
- Framúrskarandi starf að umhverfismálum í sveitarfélaginu
Hægt er að senda ábendingar til nefndarinnar á netfangið: arborg@arborg.is fyrir 20. júlí nk.