Vorhreinsun gatna
Vorhreinsun gatna og gönguleiða er farin af stað í sveitarfélaginu. Nýlega festi sveitarfélagið kaup á gangstéttarsóp og hefur hafið hreinsun á göngu- og hjólastígum innan sveitarfélagsins.
Verktaki mun hefja hreinsun stofngatna í vikunni og í framhaldi er stefnt að því að húsagötur séu þrifnar í byrjun maí, bréf þess efnis mun berast íbúum í vikunni þar sem dagsetningar koma fram og íbúar beðnir að færa til bíla sem standa í götunum.