Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynnt eftirfarandi tillaga að breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036:
1. Mörk og Grænamörk – Íbúðarbyggð ÍB17 – Aðalskipulagsbreyting
Framlögð tillaga aðalskipulagsbreytingar tekur til breytingar á skilmálum fyrir íbúðarbyggð ÍB17 á Selfossi. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Í breytingunni felst breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggðina ÍB17. Heimilað er að fjölga íbúðum og þétta byggðina. Eftir breytingu verði eftirfarandi skilmálar í gildi er varða uppbyggingu innan svæðisins: Heimilt er að vera með byggingar á 1-4 hæðum og sambland af einbýlishúsum og fjölbýlishúsum. Á jarðhæð er heimilt að vera með íbúðir, verslun- og þjónustu og samfélagsþjónustu. Einkum starfsemi sem þjónar íbúum í nærumhverfi. Svæðið er ætlað fyrir 50 ára og eldri. Á lóðum við Heiðmörk og Þórsmörk er til framtíðar litið gert ráð fyrir íbúðum fyrir 50 ára og eldri. Ef byggingar eru 4 hæðir þá skal efsta hæð vera inndregin. Hliðar húsa sem eru lengri en 15 m skal brjóta upp með inn- eða útskoti, litavali eða á annan hátt. Heimilt er að vera með bílakjallara. Við útfærslu svæðis í deiliskipulagi skal miða við að auka sjálfbærni, bæta gæði umhverfisins með gróðri, leitast við að skapa skjólgóð svæði þar sem sólar nýtur og að aðkoma og aðgengi sé greitt. Ásamt því að skoða aðkomu, umferðarflæði fyrir alla og bílastæði.
Samkvæmt 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýstar eftirfarandi tillögur deiliskipulags/breytingar.
2. Dvergasteinar - Deiliskipulagsbreyting
Deiliskipulagsbreytingin tekur til götunnar Dvergasteina á Stokkseyri. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir heimild fyrir raðhús á lóð Dvergasteina 1 og 3 þar sem áður var gert ráð fyrir einbýlishúsum. Samhliða er gert ráð fyrir að gatan verði að botnlanga. Engar aðrar breytingar eru gerðar á byggingaskilmálum annarra lóða deiliskipulagsins.
3. Fossnes – Sláturfélag Suðurlands - Deiliskipulag
Framlögð tillaga nýs deiliskipulags tekur til svæðis I2 innan aðalskiplags Árborgar. Skipulagsreiturinn nær til um 9,9 ha. lands sem nær yfir lóð Sláturfélags Suðurlands og svæði fyrir nýjan aðkomuveg. Lóð sláturhúss og afurðastöðvar er 9,6 ha. að stærð og er nú þegar byggð að hluta. Sláturfélagið hyggst byggja nýtt sláturhús/afurðastöð fyrir stórgripaslátrun, vestan við núverandi byggingar. Núverandi byggingarmagn á iðnaðarlóðinni skv. fasteignaskrá er um 4.565m2 og er gert ráð fyrir að stækkunin geti orðið allt að 6.000 m2 þar sem um 2000 -
2500 m2 verða byggðir í fyrsta áfanga. Auk nýrra húsa er gert ráð fyrir endurnýjun á núverandi húsnæði sláturhússins.
4. Litla Sandvík – Deiliskipulag
Framlögð tillaga nýs deiliskipulags tekur til hluta úr landi Litlu Sandvíkur, landi 1. (L211951), sem staðsett er í dreifbýli í Sveitafélaginu Árborg. Markmið skipulagsins er að gera ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss, skemmu og smáhýsa ásamt nauðsynlegum innviðum. Skipulagssvæðið nær til um 48.000 m².
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is
Skipulagstillaga nr. 1 er í kynningu frá 30. apríl til og með 26.maí 2026.
Skipulagstillögur nr. 2-4 eru í auglýsingu frá 30.apríl til og með 15. júní 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 á Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@arborg.is
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Fylgiskjöl:
- Graenamork-og-Mork-IB17-askbr.tillag
- Fossnes-SS-Deiliskipulag-greinargerd
- Litla-Sandvik-deiliskipulag-greinargerd
- Litla-Sandvik-deiliskipulag-uppdrattur
- Dvergasteinar-dskbr.-tillaga
- Fossnes-SS-Deiliskipulag-uppdrattur
Virðingarfyllst,
Vigfús Þór Hróbjartsson
skipulagsfulltrúi

