Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg
Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynntar eftirfarandi tillögur deiliskipulags:
1. Tryggvatorg og Árbakkasvæðið – Endurskoðun deiliskipulags
Framlögð tillaga endurskoðunar deiliskipulags fyrir Tryggvatorg og Árbakkasvæðis felur í sér skilgreiningu byggingarreita og byggingarheimilda í takt við gildandi deiliskipulag. Að auki eru lóðarmörk, áningarstaðir og göngustígar skilgreindir.
2. Tjaldstæði í Hellislandi – Deiliskipulag
Framlögð tillaga tekur til nýs tjaldsvæðis í landi Hellis, reitir AF6 og SL1 innan aðalskipulags Árborgar 2020-2036. Á reit AF6 er gert ráð fyrir nýju tjaldsvæði fyrir Selfoss. Reitur SL1 er að uppistöðu svæði Hellisskógs. Megin hluti Hellisskógar er þá norðan nýr þjóðvegar og hefur eingöngu verið gróðursett meðfram ánni sunnan nýs þjóðvegar. Gert er ráð fyrir að hluti þess verði nýttur undir tjald- -og útivistarsvæðis vegna stærri viðburða í bæjarfélaginu. Skipulagið nær þá að hluta inn á svæði AT2 (athafnasvæði), en þar hefur með breytingu á deiliskipulagi verið felld niður athafnalóð. Skipulagssvæðið er í heild um 19 ha að stærð, þar af svæði AF6 um 9,4 ha og svæði SL1 um 9,6 ha.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýstar eftirfarandi tillögur deiliskipulags:
3. Merkisteinn 1 L166113 – Deiliskipulag
Framlögð tillaga nýs deiliskipulags tekur til lóðar Merkisteinsvalla 1 á Eyrarbakka innan íbúðarsvæðis ÍB45. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda fyrir fjögur stakstæð hús á tveimur hæðum með mænisþaki.
4. Ljónsstaðir – Ljón 1-3 – Deiliskipulag
Framlögð tillaga nýs deiliskipulag tekur til þriggja lóða úr landi Ljónsstaða 1, hver um sig um 1 ha að stærð. Í deiliskipulaginu felst heimild til uppbyggingar á íbúðarhúsi ásamt sambyggðri bílgeymslu auk húsnæðis fyrir landbúnaðartengda starfsemi og/eða minniháttar atvinnustarfsemi ótengdri landbúnaði.
5. Deiliskipulag hesthúsasvæðis – Hestamannafélagið Sleipnir
Tillaga deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði ÍÞ2 á Selfossi var felld úr gildi með úrskurði ÚUA þess efnis þann 21. apríl 2026. Að mati Úrskurðarnefndar var ekki fjallað með fullnægjandi hætti um umhverfisáhrif deiliskipulagsins til þátta eins og lyktar, rykmyndunar, hljóðvistar, umferðarálags og áhrifa á sjónræna þætti. Uppfærð tillaga með ítarlegra mati á umhverfisáhrifum tillögunnar er nú lögð fram til auglýsingar eftir samþykkt bæjarstjórnar. Tillaga hesthúsasvæðis ÍÞ2 felur í sér heildstæða stefnu fyrir allt hesthúsahverfið, bæði núverandi svæði og stækkun þess til suðurs. Deiliskipulagið byggir í megindráttum á núverandi fyrirkomulagi með áherslu á bættar reiðleiðir og þjálfunarsvæði. Á svæði til suðurs verður gert ráð fyrir nýjum lóðum og þannig fjölgar notendum innan hesthúsasvæðisins. Kröfur um bættan aðbúnað hesta og manna hafa aukist á undanförnum árum og munu skilmálar um byggingu nýrra húsa og breytingar á eldri húsum taka mið af því. Deiliskipulagið nær til alls hesthúsahverfisins, sem er núverandi keppnis- og, hesthúsasvæði og stækkaðs hesthúsasvæðis, samtals um 27 ha. Deiliskipulagsmörkin ná einnig yfir hluta af opnu svæði milli Langholts og hesthúsahverfis vegna fyrirhugaðs reiðstígs þar. Stækkun núverandi svæðis er um 7 ha að stærð. Á nýja svæðinu næst Dísastaðarlandi er gert ráð fyrir 19 nýjum hesthúsum meðfram Bæjartröð. Lóðir eru af þremur stærðum, og er gert ráð fyrir að innan þeirra verði heimilt að byggja stakstæð hús eða parhús. Hestagerði eru staðsett sunnan við hús beggja megin götu til að tryggja sól og skjól frá ríkjandi vindáttum. Auk 19 hefðbundinna hesthúsa er gert ráð fyrir tveimur stærri lóðum fyrir hesthús með litlum reiðskemmum. Skilmálar eru settir fyrir byggingu nýrra hesthúsa og eins eru settir fram skilmálar um mögulega endurbyggingu eldri húsa. Byggingarmagn á keppnissvæði er aukið umtalsvert, bæði fyrir fipo keppnishöll en einnig fyrir minni hús til þjálfunar og fyrir áhorfendastúkur. Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036, þar sem svæðið er skilgreint með landnotkunina ÍÞ2 hesthúsasvæði.
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is
Skipulagstillögur nr. 1-2 eru í kynningu frá 13. maí 2026, til og með 5. júní 2026.
Skipulagstillögur nr. 3-5 eru í auglýsingu frá 13. maí 2026, til og með 26. júní 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 á Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@arborg.is
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fylgiskjöl:
Tryggvatorg-og-Arbakkasvaedi-endursk.-dsk-uppdrattur
Hesthusasvaedi-dsk.-Greinargerd
Merkisteinn-dsk.-uppdrattur
Merkisteinn-dsk.-greinargerd
Ljonsstadir-dsk.-uppdrattur
Hesthusasvaedi-dsk.-uppdrattur
Tjald-og-skograektarsvaedi-uppdrattur
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst,
Vigfús Þór Hróbjartsson
skipulagsfulltrúi

