Jórvík 1, áfangi 2 og Björkurstykki 3 - Deiliskipulag íbúðabyggðar.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga deiliskipulags.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti þann 14.5.2025 tillögu að deiliskipulagi íbúðabyggðar í Jórvík 1, 2. áfanga (28,9 ha) og Björkurstykki III (17,5 ha). Svæði 2. áfanga Jórvíkur liggur til suðurs í framhaldi af núverandi skipulagi í Jórvík I, og Björkurstykki III liggur milli nýrrar byggðar í Jórvík 1, og Björkurstykkis. Samanlagt er skipulagssvæðið um 46,4 ha.
- Greinagerð deiliskipulags | Jórvík 1, áfangi 2 og Björkurstykki III
- Tillaga að deiliskipulagi | Jórvík 1, áfangi 2 og Björkurstykki III
Markmið deiliskipulagsins er að skapa svæði til frekari uppbyggingar blandaðrar íbúðabyggðar og þjónustu í Árborg.
Megin áhersla deiliskipulagsins er að afmarka lóðir og skilgreina byggingarreiti fyrir íbúðarbyggð ásamt því að setja skilmála fyrir uppbyggingu innan fyrirhugaðs íbúðarsvæðis, í samræmi við lög og reglur.
Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir hæfilega þéttri byggð og hagkvæmri nýtingu lands. Íbúðarbyggðin er í meginatriðum lágreist með 1 - 2 hæða einbýlishúsum, einnar hæðar parhúsum og raðhúsum, auk tveggja hæða tví- og fjórbýlishúsum og 3 - 6 hæða fjölbýlishúsum ásamt þjónustulóðum.
Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir allt að 1200 íbúðum. Gera má ráð fyrir að uppbygging svæðis muni taka 10 - 15 ár. Gert er ráð fyrir að áhersla verði á uppbyggingu í Björkurstykki III, í fyrri áfanga og Jórvík 1. áfanga 2, í þeim síðari. Aðkoma fyrir akandi umferð verður frá Suðurhólum, Hólastekk og að Jórvík 1, 2. áfanga í gegnum núverandi byggð í Jórvík I.
Ofangreind skipulagstillaga liggja frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á skipulagsgatt.is
Skipulagstillagan er í auglýsingu frá 22. maí 2025, til og með 3. júlí 2025.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, á Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@arborg.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 3. júlí 2025.
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi