112 dagur 2026 - 30 ára afmæli Neyðarlínunnar
Neyðarlínan heldur upp á 112-daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2 minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.
Í ár minnumst við þess að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi og fyrsta símtalinu í 1-1-2 svarað 1. janúar 1996.
Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.
Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsælegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2.
• Hvar er atburðurinn?
• Hver ert þú?
• Hvað gerðist?
• Hvenær gerðist atburðurinn?Dagur íslenska táknmálsins er einnig haldinn hátíðlegur þann 11. febrúar ár hvert og verður dagskráin túlkuð á táknmáli.
Dagskrá á Suðurlandi
Miðvikudaginn 11. febrúar verður bláljósaakstur á flestum þéttbýlisstöðum sem og í uppsveitum kl. 11:20 með þátttöku slökkviliða, sjúkraflutninga HSU, björgunarsveita á hverjum stað og Lögreglunnar á Suðurlandi.

