Áttu barn sem er orðið 12 mánaða?
Þú gætir átt rétt á heimgreiðslum frá Árborg ef barnið er ekki í leikskóla eða hjá dagforeldri.
Bæði nýjar umsóknir og endurnýjun umsókna þurfa að berast fyrir 20. ágúst til að greiðslur geti átt sér stað í byrjun september.
Heimgreiðslur eru greiddar í 11 mánuði á ári og eru ekki greiddar fyrir júlí. Umsóknir sem berast eftir 20. ágúst taka gildi frá næsta greiðslumánuði. Heimgreiðslur eru ekki greiddar eftirá.
Umsókn má nálgast hér: https://www.arborg.is/rafraenar-umsoknir/skolar-daggaesla-og-fristundastarf#heimgreislur
Reglur um heimgreiðslur má nálgast hér.


