Tilkynning frá Selfossveitum
Samhliða endurnýjun Seljavegs og Tunguvegs verður farið í viðhald á hitaveitu ásamt dreifilögn frá Engjavegi 22 að Engjaveg 42 við gatnamót Tryggvagötu
Einnig verður ný niðurfallslögn lögð frá Engjavegi 22 að Sigtúni, yfirborð endurnýjað í bílastæðum og ný gagnstétt lögð. HS veitur munu leggja nýjan rafstreng undir gangstétt og endurnýja heimtaugar.
Íbúar og þjónustuaðilar við götuna eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem kunna að verða vegna framkvæmdarinnar.
Ef íbúar óska eftir frekari upplýsingum er þeim vinsamlega bent á að hafa samband við eftirlitsaðila verksins Jóhann Ágústsson í gegnum tölvupóst, johann.agustsson@gmail.com eða í síma 8615605.
Bréfi þessu er dreift í þau hús sem eiga lóðamörk að verkstað.
Neyðarnúmer vegna bilana eru:
482-1324 Selfossveitur vegna neysluvatns (heitt og kalt).
840-5570 HS-Veitur vegna rafmagns.

