„Austurvegur 2 – endurnýjun á ráðhúströppum
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í framkvæmdaverkið: „Austurvegur 2 – endurnýjun á ráðhúströppum“
Verkið felur í sér rif og fjarlægingu á eldri steyptum tröppum og stéttum við Ráðhús Árborgar við Austurveg 2 á Selfossi. Þá er einnig um er að ræða tímabundna fjarlægingu þriggja steyptra staura sem standa við eldri ráðhúströppur. Steypa skal upp nýjar tröppur og stéttar samkvæmt hönnunargögnum.
Helstu áætlaðar magntölur eru:
Steypumót 410 m²
Bendistál 6.500 kg
Steinsteypa 108 m³
Snjóbræðslurör 1.400 m
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2026.
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér: https://arborg.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/e3245f41-589d-433a-b3f9-a31404679abb
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 mánudaginn 16. júní 2026.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar


