Félagsleg stuðningsþjónusta óskar eftir starfsfólki í vaktavinnu um kvöld og helgar í sumar
Sumarstarf í kvöld- og helgarþjónustu hjá félagslegri stuðningsþjónustu Árborgar.
Félagsleg stuðningsþjónusta miðar að því að styðja íbúa sveitarfélagsins til sjálfræðis og sjálfsbjargar og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður.
Um er að ræða tvö 56% störf í vaktavinnu. Unnið er viku í senn og viku frí á milli, frá mánudagskvöldi og út sunnudagskvöld.
Vinnutími er frá 18-22 virk kvöld og um helgar frá 8-13 og aftur frá 18-22.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun júní og unnið út ágúst, eða eftir nánara samkomulagi.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Sótt er um starfið á alfred.is og eru nánari upplýsingar hér: Félagsleg stuðningsþjónusta


