Framlengdur frestur á endurnýjun umsókna um félagslegt leiguhúsnæði 2025
Endurnýjun umsókna um félagslegt leiguhúsnæði í Sveitarfélaginu Árborg þarf að skila inn fyrir 21. október 2025.
Nú er komið að endurnýjun umsókna um félagslegt leiguhúsnæði, því þurfa allir sem eru á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá Sveitarfélaginu að endurnýja umsókn sína.
Fylla þarf út í íbúagátt | Endurnýjun á umsókn um félagslegt leiguhúsnæði
Samkvæmt 11. gr reglna Sveitarfélagsins þarf að endurnýja umsókn sína um félagslegt leiguhúsnæði á hverju ári og skila inn viðeigandi gögnum.
Vinsamlegast fyllið út eyðublaðið fyrir 21. október n.k. sem er framlengdur frestur.
Sé umsókn ekki endurnýjuð fyrir 21. okt er litið svo á að ekki sé óskað eftir því að vera á biðlista fyrir félagslegt húsnæði.