Lóðir undir einbýlishús | Móstekkur
Sveitarfélagið Árborg auglýsir lausar til umsóknar glæsilegar einbýlishúsalóðir við Móstekk í Björkurstykkinu.
Um er að ræða 12 einbýlishúsalóðir, einna til tveggja hæða einbýlishús, Móstekkur nr. 88 - 110 Selfossi
Stærð lóðanna er á bilinu 830 – 916 m2 með nýtingarhlutfall 0,35 - 0,4.
Sérstakir úthlutunarskilmálar gilda um lóðirnar.
Athygli er vakin á því að einstaklingar njóta forgangs við lóðarúthlutun sbr. 6.gr reglna um úthlutun lóða.
Umsóknum skal skilað inn á íbúagátt Árborgar
Skilafrestur umsókna er til 26.janúar 2025. Dregið verður úr umsóknum á fundi skipulagsnefndar eftir yfirferð umsókna samkvæmt reglum um úthlutun lóða.