Lóðir undir íbúðarhúsnæði á Eyrarbakka, sala á Byggingarrétti
Árborg auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði í Hjalladæl á Eyrarbakka.
Árborg auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði. Um er að ræða 3 lóðir n.t.t 2 parhúsalóðir fyrir alls 4 íbúðir og ein raðhúsalóð fyrir alls 3 íbúðir Stærð lóðanna er á bilinu 1.100 - 1.650m2. Um er að ræða vel stað- settar lóðir nærri grunn- og leikskóla.
Leitað er að kauptilboðum í lóðirnar frá einstaklingum og/eða lögaðilum sem hyggjast byggja íbúðir í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Lóðirnar eru í framhaldi af núverandi Hjalladæl til austurs Lóðirnar sem um ræður eru: Hjalladæl 15 - 19, 21 - 23 og 25 - 27. Lóðirnar verða tilbúnar til afhendingar 1.nóvember 2026.
Tilboð í byggingarrétt á lóðunum ásamt umbeðnum fylgi gögnum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour innan auglýsts skilafrest, sem er kl. 12:00 föstudaginn 10.apríl 2026. Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur er liðinn. Í kjölfar opnunar verður tilboðsgjöfum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Hlekkur á útboðskerfi: Home | Ajour System

