Með ljóð í hjarta | Ljóðasamkeppni grunnskóla Árborgar
Umsóknarfrestur er á miðnætti 13. apríl 2026.
Sveitarfélagið Árborg efnir til ljóðasamkeppni á unglingastigi grunnskólanna í tilefni af Barnamenningardögum á Suðurlandi sem haldnir verða dagana 22. - 26. apríl 2026.
Ljóðasamkeppnin nefnist „Með ljóð í hjarta“ og eru efnistök frjáls. Við hvetjum kennara og aðstandendur til að hjálpa ungmennum í 8. - 10. bekk að virkja sköpunarkraftinn og senda inn ljóð á fjölbreyttu formi. Ljóðin geta verið bundin eða óbundin, ferskeytlur, limrur, hækur, tönkur og myndljóð - orðið er laust og við viljum að unglingarnir hefji upp raust sína.
Dómnefnd les yfir innsend ljóð og veitt verða verðlaun fyrir besta ljóðið og úrval ljóða lesin upp á Uppskeruhátíð Barnamenningardaga Árborgar á Sviðinu Selfossi 26. apríl 2026. Einnig verður hluti af innsendum ljóðum birtur á vefsíðu Árborgar.
Hvernig tökum við þátt?
Nemendur geta annaðhvort samið sitt eigið ljóð eða haft samvinnu við aðra. Þá væri t.d. upplagt að bekkurinn skoðaði í sameiningu þau ljóð sem senda á í keppnina en vanda þarf til verka hvað varðar innihald, frágang og uppsetningu. Umfjöllunarefni ljóðanna er frjálst, þau geta verið um allt það sem brennur á krökkunum.
Mikilvægt er að merkja ljóðin með nafni höfundar, bekk og skóla. Senda má ljóðin í keppnina rafrænt á netfangið barnamenning@arborg.is eða skila þeim með bréfi til Bókasafna Árborgar fyrir lok 13. apríl 2026.

