Opnað fyrir umsóknir á frístundaheimili
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á frístundaheimili Árborgar fyrir næsta skólaár, 2026 - 2027.
Kæru foreldrar/forráðamenn barna í 1.- 4. bekk
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á frístundaheimili Árborgar fyrir næsta skólaár, 2026 - 2027.
Umsóknir eru framkvæmdar á Völu inni á vala.is
Athugið að vistun flyst ekki á milli ára og því þarf að sækja um að nýju ef þið ætlið ykkur að nýta frístund aftur á næsta skólaári.
Síðasti dagur vetrarfrístundar þessa skólaárs, 2025 - 2026, verður 11. júní n.k. sem er dagur skólaslita. Þar eftir detta allir þátttakendur út af lista. 12. júní er starfsdagur fyrir komandi sumarfrístund.
Kær kveðja,
Forstöðukonur frístundaheimila Árborgar

