Opnað hefur verið fyrir skráningu í Sumarfrístund 2026
Sumarfrístund er opin 15. júní - 10. júlí. Sumarfrístund lokar svo í 4 vikur. Lokunin stendur frá 10.júlí og opnar aftur mánudaginn 10. ágúst. Þá verða námskeið í boði til 21. ágúst.
Sumarfrístund er opin 15.júní - 10. júlí. Sumarfrístund lokar svo í 4 vikur. Lokunin stendur frá 10.júlí og opnar aftur mánudaginn 10.ágúst. Þá verða námskeið í boði til 21. ágúst.
Athugið að fyrstu 5 vikurnar eru í boði fyrir börn fædd 2016-2019. Eftir sumarfrí eru námskeiðin í boði fyrir börn fædd 2017-2019. Aðlögunarnámskeið fyrir verðandi 1. bekk verður auglýst síðar.
Sumarfrístund er opin frá kl 9:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga, en á föstudögum lokar sumarfrístund kl. 14:00 vegna styttingu vinnuvikunnar og starfsmannafunda. Hægt er að greiða fyrir viðbótarstund frá kl 8:00 - 9:00.
Ekki er boðið upp á hressingu fyrir þátttakendur, því þarf að koma með 3 nesti fyrir hvern dag. Gott er að merkja nestið 1-2-3 svo börnin geri greinamun á morgunhressingu, hádegismat og síðdegishressingu.
Fyrirkomulagið er þannig að börnin eru skráð hverja viku fyrir sig. Það er einungis hægt að skrá á 5 daga námskeið með vistun allan daginn, eða 4 daga námskeið með vistun allan daginn í þeim vikum sem lögbundnir frídagar falla á.
Fyrstu vikuna ásamt þeirri síðustu eru 4. daga námskeið vegna lögbundinna frídaga og Fræðsludags Árborgar.
Í sumarfrístund er ekki tekið tillit til æfingartíma annarra tómstunda/námskeiða.
Skráning á námskeið lokar á þriðjudegi í vikunni áður en námskeið hefst. Takmörkuð pláss eru í boði á námskeiðin og því geta myndast biðlistar. Við hvetjum ykkur því til að huga að skráningu sem fyrst :)
Viðbótarstund - 2.892 kr –
5 daga námskeið - 14.497 kr –
4 daga námskeið - 12.855 kr - Sótt er um í gegnum Völu á https://sumar.vala.is/#/login


