Öskuminningar | tíu ár frá öskugosi
Þann 21. maí 2021 eru liðin tíu ár frá því að gos hófst í Grímsvötnum. Mikið öskufall fylgdi gosinu.
Ári áður var gos á Fimmvörðuhálsi og síðan gaus Eyjafjallajökull og stöðvaði alla umferð um Evrópu og víðar um heiminn. Gosið í Grímsvötnum stóð yfir í viku en það kom mikið magn ösku upp. Það er hryllileg tilhugsun að gosið hefði í tæpa fjörutíu daga eins og Eyjafjallajökull gerði árið áður. Askan olli íbúum Skaftárhrepps miklum áhyggjum, mikil vinna var að þrífa allt innan sem utan og askan hafði áhrif á allt samfélagið næstu daga og sumarið.
En þrátt fyrir að þessi tími hafi verið erfiður langar Menningarmálanefnd Skaftárhrepps og Vatnajökulsþjóðgarði að minnast þessa atburðar með hátíð sem við köllum Öskuminningar.
Munið að taka frá 5. júní 2021 til að koma á hátíðina Öskuminningar!
Þeir sem hafa áhuga á að fletta upp á góðu efni um Grímsvatnagosið er bent á síðu á Veðurstofu Íslands þar sem bæði er fróðleikur í máli og myndum.