Skemmdarverk á ærslabelg við Sunnulækjarskóla
Aðkoma að ærslabelgnum var slæm eftir helgina, búið var að moka mikið af sandi á belginn og maka hann í smurolíu.
Framkvæmdir hafa verið í gangi við ærslabelginn hjá Sunnulækjarskóla og tefjast þær vegna skemmdarverka sem fela sömuleiðis í sér tilheyrandi aukakostnað.



