Skólaakstur fyrir Árborg
Fjársýslan fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar óskar eftir tilboðum í akstur sem heyrir undir starfsemi fjölskyldusviðs Árborgar.
Verkefnið nær til fimm þjónustuflokka/innkaupahluta.
- Skólaakstur milli Eyrarbakka og Stokkseyrar samkvæmt tímatöflu og tilfallandi akstur.
- Skólaakstur fyrir Vallaskóla og Sunnulækjarskóla og nýjan grunnskóla í Björkustykki samkvæmt tímatöflu og tilfallandi akstur.
- Frístundaakstur innan Selfoss samkvæmt tímatöflu.
- Innanbæjarstrætó fyrir Árborg sem einnig er hugsaður til þess að sinna frístundaakstri fyrir skólabörn á Eyrarbakka og Stokkseyri.
- Akstur fyrir ferðaþjónustu fatlaðra og notendur dagdvalar aldraðra Árblik.
Bjóðandi skal bjóða í alla fimm flokka útboðsins.
Nánari upplýsingar má finna hér: Skólaakstur fyrir Árborg | Útboðsvefur
Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi Fjársýslunnar, TendSign.is.
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu Fjársýslunnar.

