Sumarstarf - félagsleg stuðningsþjónusta
Velferðarþjónusta Árborgar leitar liðsafla í félagslega stuðningsþjónustu.
Félagsleg stuðningsþjónusta miðar að því að styðja íbúa sveitarfélagsins til sjálfræðis og sjálfbjargar og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður.
Um er að ræða fjögur 90-100% sumarstörf, störfin eru að aðstoð við þrif á heimilum fólks, félagslegur- og persónulegur stuðnings við þjónustuþega og tilfallandi aðstoð í félagsmiðstöð eldra fólks í Grænumörk 5.
Starfstímabil er frá og með lok maí og til lok ágúst, eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnutíminn er á milli 08:00 og 15:12 á virkum dögum í 100% starfi.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Sótt er um starfið á alfred.is og eru nánari upplýsingar hér: Sumarstarf - félagsleg stuðningsþjónusta


