Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir umsóknum um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka
Um er að ræða styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni. Sækja skal um fyrir 10. apríl 2026.
Sótt er um styrkinn á „ Mínar síður “ á vef sveitarfélagsins, www.arborg.is
Frestur til að sækja um styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum í Sveitarfélaginu Árborg sem nýttar eru fyrir starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, s.s. menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi eða vinnu að mannúðarstörfum, rennur út þann 10. apríl n.k.
Skilyrði er að viðkomandi fasteign sé skráð eign almenns félags eða að það sé handhafi þinglýsts húsaleigusamnings til a.m.k. eins árs og að fram komi í samningnum að félagið skuli greiða fasteignagjöld af hinu leigða húsnæði. Veittur styrkur getur aldrei numið hærri fjárhæð en sem svarar 50% af álögðum fasteignaskatti. Ekki er veittur styrkur til greiðslu þjónustugjalda, svo sem lóðaleigu, vatns- og fráveitu gjalds og sorphirðugjalda.

