Útboð | plön við Engjaveg og Jötunheima
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið “Plön við Engjaveg og Jötunheima“. Í verkinu fellst gerð malbikaðra plana ásamt tilheyrandi jarð- og lagnavinnu.
Verklok : Plan við Engjaveg – íþróttavöll: 20. júlí 2021. Önnur verk: 27. ágúst 2021
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt | 2700 m3 |
Fyllingar | 1850 m3 |
Malbik | 3700 m2 |
Kantsteinar | 540 m |
Hellulagnir | 330 m2 |
Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef Ajour sem er aðgengilegur hér.
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.
Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11.00 fimmtudaginn 10. júní 2021.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Útboðsgögn afhendast á útboðsvef frá og með föstudeginum 28. maí kl. 11:00. Ekki verður hægt að óska eftir útprentuðum útboðsgögnum.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar