Verðkönnun fyrir Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir verðtilboði í eftirfarandi ráðgjafaverkefni á vegum sveitarfélagsins: Rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir verðtilboði í eftirfarandi ráðgjafaverkefni á vegum sveitarfélagsins.
- Rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar
Tilboði í verðkönnun skal skila í tölvupósti á bragi@arborg.is fyrir kl. 12:00, mánudaginn 24. ágúst 2026. Nánar er greint frá tilboðsskilum í lýsingu en allar nánari upplýsingar veitir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri, bragi@arborg.is.
Lýsing á verkefni - Rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar
Óskað er eftir ráðgjafa til að rýna stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar. Árborg hefur vaxið ört á undanförnum 10 árum og verkefni fagsviða aukist samhliða ásamt því að nýjar rekstrareiningar hafi bæst við. Nýtt skipurit tók gildi í upphafi árs 2019 en hefur þróast talsvert frá þeim tíma með frekari fækkun fagsviða og tilfærslu verkefna (sjá gildandi skipulag í fylgiskjali).
Um er að ræða rýni á skipulagi, umfangi og verkefnum hvers fagsviðs. Markmið vinnunnar er að greina styrkleika og tækifæri til úrbóta í starfsemi sveitarfélagsins. Horft er til þess að meta skipulag og verkaskiptingu, auka skilvirkni, stuðla að skýrari ábyrgðarskipan og draga úr álagi á sem hagkvæmasta hátt með heildarhagsmuni sveitarfélagsins og gott starfsumhverfi í fyrirrúmi. Í vinnunni felst að meta hvort tilefni sé til breytinga á skipuriti til næstu ára, endurskoða verkaskipting milli sviða og deilda og leggja fram tillögur að úrbótum á samstarfi, verkferlum og ábyrgð.
Gert er ráð fyrir um 27 viðtölum við stjórnendur og starfsmenn ásamt 3-4 vinnufundum með bæjarstjórn, bæjarráði, bæjarstjóra eða öðrum stjórnendum þegar unnið er að tillögum til úrbóta.
Gert er ráð fyrir að vinna ráðgjafa geti hafist í byrjun september og ljúki í nóvember 2026.
Tilboði skal skilað með upplýsingum um menntun og reynslu tilboðsgjafa af sambærilegum verkefnum, lýsing á aðferðafræði við úrlausn verkefnisins, verkefnaáætlun, tímagjaldi og áætluðum tímafjölda verkefnis.
Tilboð verða metin á grundvelli reynslu og hæfni ráðgjafa til að sinna verkefninu, fyrirhugaðrar verkefnaáætlunar, aðferðafræði, áætlaðs tímafjölda og verðs. Árborg áskilur sér rétt til að óska eftir frekari upplýsingum eða skýringum frá tilboðsgjöfum áður en ákvörðun er tekin. Við mat á tilboðum verður horft til þess hvað sé hagkvæmast fyrir sveitarfélagið með hliðsjón af öllum framangreindum þáttum, ekki eingöngu lægsta tilboðs. Sveitarfélagið Árborg áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.


