Vilt þú gerast dagforeldri í Árborg?
Auglýst er eftir einstaklingum sem hafa áhuga á að gerast dagforeldrar í Sveitarfélaginu Árborg.
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi verktakar en umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra sem og ráðgjöf til dagforeldra og foreldra er á vegum sveitarfélagsins.
Við vekjum athygli á að niðurgreiðsla er samkvæmt gjaldskrá sem birt er á vefsíðu Árborgar. Veittir eru styrkir til dagforeldra samkvæmt reglum um daggæslu barna í heimahúsum og sótt er um þá inni á Mín Árborg, rafrænni íbúagátt á vefsíðu Árborgar.
Ef þú hefur áhuga á að gerast dagforeldri í Árborg má finna umsóknareyðublað inni á vefsíðu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, á www.gev.is
Nánari upplýsingar veita Bára Kristbjörg Eyfjörð Gísladóttir, leikskólaráðgjafi, barak@arborg.is eða Hrönn Erlingsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, hronne@arborg.is í síma 480-1900.

