Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands
Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum í sjóðinn og er styrkjum úthlutað með hliðsjón af niðurstöðu faglegs mats sérstakrar matsnefndar. Til úthlutunar eru um 1.000.000 krónur árlega.
Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.
Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands veitir styrki sem ætlaðir eru námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi.
Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2026. Hægt er að sækja um hér.
Tilkynnt verður um styrkhafa í byrjun febrúar 2026.
