Lífshlaupið hefst 3. feb | Skráning hefst 20.jan
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta.
Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka
- Vinnustaðakeppni frá 3. febrúar - 23. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
- Framhaldsskólakeppni frá 3. febrúar – 16. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
- Grunnskólakeppni frá 3. febrúar – 16. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
- Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið
Eins og ávallt hvetjum við alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.
Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finna hér.
Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu.
Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.
Þín heilsa - Þín skemmtun