Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Hitaveita

Opnunartímar skrifstofu Selfossveitna
Mánudaga - föstudaga kl. 09:00 - 12:00

Opnunartími tæknimála Selfossveitna
Mánudaga - föstudaga kl. 09:00 - 12:00
Bilanasími: 894 5243

Aðsetur: Austurvegi 67 | 800 Selfoss | Kt.: 630992-2069
Sími:  480 1500netfang: selfossveitur@selfossveitur.is 

Skrifstofa Mannvirkja- og umhverfissviðs að Austurvegi 67 er opin alla virka daga kl. 09:00 - 12:00. Hægt er að bóka viðtalstíma hjá skipulags- og byggingafulltrúa í síma 480 1900 eða á opnunartíma.

Allar umsóknir um tengingar við hitaveitu skulu berast inn í gegnum Mínar síður. Ekki er tekið við skriflegum umsóknum.

Athygli er vakin á því að ekki er hægt að sækja um nýjar heimæðar nema húsbygging hafi uppfyllt skilyrði tæknilegra tengiskilmála n.t.t náð B2- Byggingastigi 2 – fokheld bygging. Einnig er gerð krafa um að húsbygging hafi náð B1- Byggingastigi 1 – byggingaleyfi til að hægt sé að sækja um bráðabirgðatengingar.

Mælaálestur - fjaraflesturbúnaður

Sú vinna stendur yfir hjá Selfossveitum að snjallmælavæða allar veitur í sveitarfélaginu Árborg. Um er að ræða 5 ára verkefni sem hófst haustið 2019. Til stendur að setja upp fjaraflestursbúnað en þar til hann verður settur upp þurfa viðskiptavinir að lesa sjálfir af mælunum. Einfaldar leiðbeiningar um álestur eru límdar á nýju Sharky snjallmælana en hér má sjá nánari leiðbeiningar.
Mælaálestur - Leiðbeiningar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica