2. mars 2020 : Frá Almannavörnum

Í ljósi þess að nú hefur hættustigi almannavarna verið lýst yfir vegna COVID-19 kórónaveirunnar áréttar almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mikilvægi þess að allir fylgi leiðbeiningum sóttvarnarlæknis. Nýjustu upplýsingar eru ávallt að finna á vef Landlæknisembættisins.

27. febrúar 2020 : Uppbyggingarsjóður Suðurlands

Opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands til 3. mars , kl. 16:00.
Styrkveitingar skiptast í tvo flokka, annars vegar atvinnu og nýsköpun og hins vegar menningu. Í flokki atvinnu og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs.

Lesa meira

21. febrúar 2020 : Leikskólanum Álfheimum veitt viðurkenning

Á Ráðstefnu Landverndar hlaut leikskólinn Álfheimar viðurkenningu. Við getum öll haft áhrif. Ráðstefna Skóla á grænni grein 2020 var yfirskrift ráðstefnu Landverndar sem var haldinn 7. febrúar sl. Þar var fjallað um þær áskoranir sem fylgja skólastarfi á tímum loftslagsbreytinga og var sjónum beint að valdeflandi aðferðum og verkfærum sem nota má með nemendum.

Lesa meira

20. febrúar 2020 : Útboð

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið: „Lausar kennslustofur við Vallaskóla 2020“.

Verkið felur í sér smíði og uppsetningu á tveimur færanlegum kennslustofum og tengigangi, á lóð Vallaskóla á Selfossi. 

Lesa meira

18. febrúar 2020 : Vor í Árborg 2020 - tillögur og hugmyndir

Menningar- og bæjarhátíðin „Vor í Árborg 2020″ verður haldin 23.- 26. apríl nk. Skipulagning er á undirbúningsstigi og hvers kyns tillögur að dagskráratriðum og/eða hugmyndum um menningarviðburði eru vel þegnar. Hér með er óskað eftir þátttöku félaga og samtaka, einstaklinga og áhugahópa, fyrirtækja og stofnanna.  

Lesa meira

17. febrúar 2020 : Fundarboð

Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 19. febrúar 2020 í Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl.17:00.

Lesa meira

17. febrúar 2020 : Eyravegur 34-38 Selfossi. Lýsing deiliskipulagsáætlunar.

Samkvæmt 1.mgr.40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing deiliskipulags fyrir lóðirnar Eyravegur 34-38 á Selfossi í Sveitarfélaginu Árborg. Um er að ræða deiliskipulag á skipulagssvæði sem skilgreint er verslunar- þjónustu og íbúðarsvæði. Skipulagssvæðið afmarkast af lóðunum Eyravegi 34-38. Selfossi. Lóðirnar eru vestan Fossvegs og norðan Eyravegs.

Lesa meira

14. febrúar 2020 : Sundhöll Selfoss opnar kl. 14:30 í dag, fös. 14.feb.

Sundhöll Selfoss mun opna kl. 14:30 í dag, föstudaginn 14. febrúar. 

Lesa meira

10. febrúar 2020 : Innritun í grunnskóla skólaárið 2020-21

Innritun barna sem eru fædd árið 2014 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2020 fer fram 14. - 24. febrúar næstkomandi. 

Lesa meira

6. febrúar 2020 : Útboð

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í : „Stígar í Árborg 2020". 
Verkið felur í sér malbikun, gerð burðarlags og jarðvegsskipti þar sem það á við á stígum í Árborg.
Eyrabakkastígur að Kaldaðarnesvegi, stígar í Tjarnahverfi og stígar við Blómsturvelli

Lesa meira

5. febrúar 2020 : Lögð fram þingsályktunartillaga um menningarsal Suðurlands á Selfossi

Nokkrir þingmenn af Suðurlandi hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu menningarsalar Suðurlands á Selfossi. 

Lesa meira

5. febrúar 2020 : Unnið að hönnun á nýjum skóla á Selfossi

Vinna Hornsteina og Eflu við hönnun nýja skólans í Björkurstykki gengur vel. Byggingarnefnd hefur haldið 21 fund og á síðustu fundum nefndarinnar hafa arkitektar farið yfir staðsetningu skólans á lóðinni sem og heildar- og innra skipulag hússins með tilliti til leikskóla, tónlistarskóla, grunnskóla, frístundaheimilis og íþróttahúss. 

Lesa meira
Síða 82 af 84

Nýjustu fréttirnar

Fyrirsagnalisti

29. október 2026 : Magnús J. Magnússon er handhafi menningarviðurkenningar Árborgar 2026

Menningarviðurkenning Árborgar 2026 var veitt við fjölmenna og fjöruga athöfn í Grænumörk í dag, 29. október. 

Sjá nánar

28. október 2026 : Forvarnardagur í Árborg 2026

Forvarnardagur Árborgar var haldinn miðvikudaginn 21. október sl. og tókst afar vel. Deginum er ætlað að efla forvarnarstarf meðal ungmenna og skapa vettvang fyrir fræðslu, samtal, samveru og jákvæð tengsl.

Sjá nánar

27. október 2026 : Sex mánaða uppgjör Árborgar - Reksturinn stöðugur en veruleg áhrif verðbólgu

Sveitarfélagið Árborg hefur birt árshlutauppgjör samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Uppgjörið sýnir sterkan undirliggjandi rekstur og góða tekjuöflun, þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður. Verðbólgan er þar stærsti óvissuþátturinn og hefur veruleg neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðuna. 

Sjá nánar

27. október 2026 : Menningarviðurkenning Árborgar 2026

Sveitarfélagið Árborg veitir Menningarviðurkenningu Árborgar fimmtudaginn 29. október kl. 14:30 í Grænumörk, Selfossi. 

Sjá nánar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica