Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


17. febrúar 2020 : Eyravegur 34-38 Selfossi. Lýsing deiliskipulagsáætlunar.

Samkvæmt 1.mgr.40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing deiliskipulags fyrir lóðirnar Eyravegur 34-38 á Selfossi í Sveitarfélaginu Árborg. Um er að ræða deiliskipulag á skipulagssvæði sem skilgreint er verslunar- þjónustu og íbúðarsvæði. Skipulagssvæðið afmarkast af lóðunum Eyravegi 34-38. Selfossi. Lóðirnar eru vestan Fossvegs og norðan Eyravegs.

Lesa meira

14. febrúar 2020 : Sundhöll Selfoss opnar kl. 14:30 í dag, fös. 14.feb.

Sundhöll Selfoss mun opna kl. 14:30 í dag, föstudaginn 14. febrúar. 

Lesa meira

10. febrúar 2020 : Innritun í grunnskóla skólaárið 2020-21

Innritun barna sem eru fædd árið 2014 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2020 fer fram 14. - 24. febrúar næstkomandi. 

Lesa meira

6. febrúar 2020 : Útboð

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í : „Stígar í Árborg 2020". 
Verkið felur í sér malbikun, gerð burðarlags og jarðvegsskipti þar sem það á við á stígum í Árborg.
Eyrabakkastígur að Kaldaðarnesvegi, stígar í Tjarnahverfi og stígar við Blómsturvelli

Lesa meira

5. febrúar 2020 : Lögð fram þingsályktunartillaga um menningarsal Suðurlands á Selfossi

Nokkrir þingmenn af Suðurlandi hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu menningarsalar Suðurlands á Selfossi. 

Lesa meira

5. febrúar 2020 : Unnið að hönnun á nýjum skóla á Selfossi

Vinna Hornsteina og Eflu við hönnun nýja skólans í Björkurstykki gengur vel. Byggingarnefnd hefur haldið 21 fund og á síðustu fundum nefndarinnar hafa arkitektar farið yfir staðsetningu skólans á lóðinni sem og heildar- og innra skipulag hússins með tilliti til leikskóla, tónlistarskóla, grunnskóla, frístundaheimilis og íþróttahúss. 

Lesa meira

3. febrúar 2020 : Ráðherra samþykkir reglur um Sérdeild Suðurlands

Á haustdögum 2019 samþykkti Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta – og menningarmálaráðherra, reglur um innritun og útskrift grunnskólanemenda úr Sérdeild Suðurlands (Setrinu) sem er til húsa í Sunnulækjarskóla. 

Lesa meira

31. janúar 2020 : Mat á umhverfisáhrifum

Sveitarfélagið Árborg hefur undanfarið unnið að undirbúningi vegna hreinsistöðvar fráveitu á Selfossi. Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og hefur verkfræðistofunni EFLU verið falið að vinna umhverfismatið. Lögð hefur verið fram frummatsskýrslu fyrir hreinsistöð fráveitu á Selfossi til athugunar hjá Skipulagsstofnun.

 

Lesa meira

28. janúar 2020 : Auglýst eftir rekstraraðila fyrir tjaldsvæðið á Stokkseyri

Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir rekstraraðila að tjaldsvæðinu á Stokkseyri. 

Lesa meira

17. janúar 2020 : Jólagluggi Árborgar - Vinningshafar 2019

Heppnir Þáttakendur voru dregnir út í jólagluggaleik Árborgar 2019. Fjöldi barna tóku þátt en dregnir voru út þrír vinningshafar sem fengu afhenta vinninga frá Gísla Halldóri Halldórssyni, bæjarstjóra Sveitarfélagsins Árborgar.

Lesa meira

17. janúar 2020 : Sveitarfélagið Árborg og Flóahreppur á Mannamótum 2020

Hin árlega ferðasýning/kaupstefna Mannamót var haldin í gær fimmtudag í Kórnum, Kópavogi. Fjöldi fyrirtækja frá öllum landshlutum voru skráð til þátttöku í ár þar á meðal fyrirtæki frá Árborg og Flóahreppi sem kynntu starfsemi sína.

Lesa meira

16. janúar 2020 : Framvinda fjölnota íþróttahússins á Selfossi

Í gær miðvikudaginn 15.01 var ákveðnum áfanga náð í byggingu á fjölnota íþróttahúsinu á Selfossi þegar fyrsta steypa fór fram.

Lesa meira
Síða 81 af 84

Nýjustu fréttirnar

Fyrirsagnalisti

1. september 2026 : Frístundamessa Árborgar laugardaginn 5. september

Frístundamessa Árborgar verður haldin í Kappahl-höllinni laugardaginn 5. september kl. 10:00–12:00. Þar gefst börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra tækifæri til að kynna sér fjölbreytt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf sem er í boði í sveitarfélaginu.

Sjá nánar

24. ágúst 2026 : Auglýsing um kjörfund vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 í Sveitarfélaginu Árborg

Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í Sveitarfélaginu Árborg verður haldinn laugardaginn 29. ágúst 2026.

Sjá nánar

24. ágúst 2026 : Tómstundaakstur skólaárið 2026/2027

Tómstundabíllinn ekur alla virka daga frá kl. 13:10-16:20 (sjá neðar) og hefur það hlutverk að keyra börn frá Frístundaheimilum og skóla í íþrótta- og tómstundastarf innan sveitarfélagsins. Öll börn geta nýtt sér tómstundabílinn og ekki er innheimt neitt gjald fyrir aksturinn.

Sjá nánar

23. ágúst 2026 : Sveitarfélagið Árborg semur við GTS ehf. um akstursþjónustu

Sveitarfélagið Árborg og GTS ehf. hafa undirritað nýjan þjónustusamning um akstursþjónustu fyrir sveitarfélagið að loknu útboðsferli. Samningurinn gildir til næstu fimm ára, með möguleika á framlengingu um allt að þrjú ár til viðbótar.

Sjá nánar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica